12.6.2008 | 23:04
Klói kominn á kreik
Jæja þá er maður byrjaður að blogga aftur, vegna fjölda áskoranna. Svo frétti ég líka að allt blogg væri varðveitt forever á landsbókasafninu, gott fyrir ættingjana, ég er reyndar steingeldur eins og þið vitið.
Sumarið er komið, ég með nýja bjöllu. Hún er æðisleg, spilar kattadúettinn reglulega. Þetta er svona kisuspilastokkur. Max hefur það þokkalegt, enda nudda ég hann ótt og títt og fer með hann í göngutúra, hann sér ekki nokkurn hlut núorðið, ekki einu sinni Mjásu sætu, uppáhaldið okkar.
Ég hef þroskast mikið, er hættur að eltast við fuglana, læt mér nægja flugurnar. Bið að heilsa öllum kisum og sendi ástarkveðjur í Kattholtið. ....halló Sigga ertu þarna, þetta er ég Klói ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2008 | 23:37
Óska eftir loforðum
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2008 | 23:07
Klói í framboð
Eins og bloggheimur veit þá hef ég ákveðið að bjóða mig fram til borgarstjóra. Mitt fyrsta verk verður að koma kælinum aftur í Austurstrætið og allir vinir mínir fá afslátt. Er þetta ekki fínt loforð.
Áfram klói..............munið X - klói..... Einn fimmaur á dag kemur skapinu í lag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2008 | 22:29
Ég vil vera borgarstjóri
Ég vil vera næsti borgarstjóri. Það verður hérna sko gott fyrir alla borgarbúa, allavega kisurnar. kattholt fær hálfan milljarð í styrk og allar kisur fá rjóma og rækjur daglega. Er ég ekki sætur. Miklu sætari en Óli og Villi allavega......... bara smá grín, er það ekki í lagi.
Nú Max vinur minn verður aðstoðarborgarstjóri. Villi fær að vera hérna forseti borgarstjórnar hérna og Óli formaður borgarráðs. Þá verður Hanna Birna einkaritari minn..... ...... einkaritari, glætan. Líst ykkur ekki bara vel á. Plís segið já.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2008 | 00:51
Sakna jólatrésins
Þá eru blessuð jólin búin. Þau fyrstu eftir að ég fullorðnaðist. Ég gaf Max vini mínum gjafakort í Dýraríki, en fékk sjálfur gullfallega ól í jólagjöf, mjög falleg og krúttleg kisuól. Reyndar svolítið stelpuleg..... .
Ég sakna hins vegar jólatrésins. Það var yndislegt að liggja undir því, sérstaklega þegar pakkarnir voru.
Það var svo góð tilfinning að vera þarna innan um alla pakkana og ekki skemmdi ilmurinn af trénu fyrir. Það var reyndar gervitré...... Er ég ekki flottur þarna með öllum pökkunum ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2008 | 22:57
Eins og kettlingar !
Það var alveg hrikalegt að horfa á strákana okkar áðan. Gátu ekki neitt, voru hundlélegir, eins og lömb leidd til slátrunar.....Við Max vorum búnir að koma okkur vel fyrir, með rækjur og rjóma. Ekki nema það, við misstum alveg listina að horfa á þessa kettlinga. ...góður, kettlinga.
Svo þóttust þessir handboltaspekingar vita allt. Liðið væri rosa gott, nema markvarslan. Annað kom í ljós í þessum leik, markverðirnir voru þeir einu sem eitthvað gátu og vörðu eins og bavíanar.
Er farinn til Max, best að biðja fyrir strákunum svo þeir komi fílefldir til leiks á laugardag.
Kveðja frá Klóa......Max biður að heilsa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2007 | 23:28
Okkar væntingar
Hæ öll, Klói hér.....Pínu langt síðan ég hef bloggað, lenti í smá ferðalagi með Max, segi ykkur frá því síðar
Hvaða dagur er annars í dag. Er það Dagsdagur, eða Villadagur sorry smá fimmaur. Bara svo þið vitið þá er ég ópólitískur en styð alla sem standa með mér í málefnabaráttunni, við Max stöndum saman
Við viljum aukinn styrk til Siggu í Kattholti, og góðan endurskoðanda ...góður, endurskoðanda. Þá viljum við Max að öllu svínaríi sé hætt. Að lokum krefjumst við þess að bannað sé að ganga með hundshaus í borginni, erum hundleiðir á því...
P.s ..erum við hestaheilsu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.8.2007 | 23:41
Vinur minn Max
Mig langar að segja ykkur frá vini mínum, honum Max. Hann er miklu eldri en ég, hann er tíu ára, en ég bara tíu mánaða. Vitið þið hvað, Max er eiginlega alveg blindur. Kannski þess vegna sem hann er svona hrifin af mér .... góður. Max átti bróður sem dó fyrir tveimur árum og eftir það lagðist hann í þunglyndi.
En öll él birtir upp um síðir, ( skáldlegur ). Eftir að Max kynntist mér var hann laus úr viðjum þunglyndisins og tók mér eins og bróðir væri. Hann nuddar mig og hreinsar. Ég elska hann Max . Þetta er ást sem byggist á innilegri vináttu, enda báðir steingeldir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.8.2007 | 18:21
Innandyra í kvöld.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.8.2007 | 11:41
Vangaveltur kisu
Þegar ég var lítill, er mér sagt, skildi eigandi okkar systkinanna okkur eftir í pappakassa fyrir utan hús í Breiðholti. Ég er þarna lengst til hægri. Er ég ekki sætur
Sá sem fann okkur í kassanum fór með okkur upp í kattholt til hennar Siggu. Takk fyrir það. Á sama tíma var hún Alda litla í Sólheimunum að leita sér að fallegri kisu. Hún fór með mömmu sinni og pabba upp í Kattholt. Um leið og ég sá þau vonaði ég að þau myndu velja mig. Draumurinn rættist. Alda og co tóku mig að sér og nú er ég orðin 10. mánaða og líður mjög vel
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Bloggvinir
Af mbl.is
Fólk
- Gæti fengið allt að 24 ára dóm
- Sláandi lík föður sínum
- Trump Jr. og Bettina Anderson farin að búa saman
- Stórbrotið verk Bjarkar í sýningu hérlendis
- Skoran á Sanchez vakti athygli á innsetningu Trumps
- Þetta lærði Tinna af móður sinni
- Klessti á vegg og átti ekki mjög gott tímabil
- Ýtir undir sögusagnir um skilnað